Međ Geysi framan á......................
24. október 2007 klukkan 13:32
Ég rakst á alveg hreint ómótstæðilegar karlmannsnærbuxur í búð einni hér í bæ (rakst ekki beint á þær, en sá þær á henginu).
Um var semsagt að ræða svona týpískar boxer buxur, en það sem gerð þær áhugaverðar í mínum augum var myndin sem prentuð var á þær. Jú, myndin var af engum öðrum en hinum marg rómaða og alheimsfræga GEYSI í Haukadal. Og undir myndinni stóð stórum stöfum; GEYSIR.
Merkilegt nok, svona líka ofur náttúrulegar og rammíslenskar naríur, hér á ferð.
Ég hrökk í kút. Jú, jú að sjálfsögðu þekkir maður fólk sem eru sérstaklega miklir Íslendingar í sér og bera íslenska fánann á húfum sínum, flagga lágmark 8 sinnum á ári, skreita kransakökuna með íslenska fánanum og drekka úr bollum í fánalitunum..........en halló, ekki á naríunum (en hvað ætli ég svosem viti um það)
Ég er bara ekki að skilja þetta, nema þá að Geysir eigi með einhverjum hætti að lýsa því , sem naríurnar annars hylja.
Geysir er jú afar kraftmikið fyrirbæri, gusar út úr sér fleiri tugi, ef ekki hundruði metra og þvílíku magni, í þokkabót. Hefur laðað að sér tugi þúsunda kvenna (og karla) í gegnum tíðina, án þess að hafa svo ýkja mikið fyrir því og geri aðrir betur.
Jú, kanski er einhver sem vill líkja sér við hann, og undirstrika það með því að klæðast þessum ósköpum.
En þá vil ég góðfúslega benda á það að Geysir er dauður úr öllum æðum. Úr honum hefur ekkert komið í mörg herrans ár, og síðast var það með hjálp góðra manna og kvenna.
Kannski er þetta bara endalaust grín.....kannski bara geysir grín. Dæmi nú hver fyrir sig
Anna kveður
