Hingađ og ţangađ....í allan dag :O)
26. september 2007 klukkan 21:36
Ég biðst svo sannarlega forláts yfir bloggleysis-ismanum sem hefur hrjáð mig að undanförnu.
Ástæðan er margföld, en aðallega.......hef ég verið of ÖNNU M kafinn. En meira en nóg um það.´
Rankaði við mér og áttaði mig á því nú, í lok dags, hversu íslensk veðrátta getur leikið mann grátt. Úrhellisrigningardemba í allan dag og hávaðabrjálæðisrok í kaupbæti. Ja, há og þá varð dagurinn svona, takk fyrir...
Skutlaði drengjum A,B og C í skólann.....og fór heim. Skrapp á mömmumorgna með dreng D....og fór svo heim. Sótti dreng C í skólann kl eitt og fórum heim. Skutlaði dreng C á fótboltaæfingu, skrapp í búðarráp með ömmu og dreng D, keypti slátur, sótti dreng C á æfingu og kom mér heim. Skutlaðist eftir dreng A í skólann og kom honum heim. Hentist með dreng C á fimleikaæfingu og dreif mig heim, því þá þurfti drengur B að komast á fótboltaæfingu og svo fór ég heim. Skruppum svo til nýgiftu hjónanna í kók og súkkulaðiköku og komum okkur svo heim......og hér er ég nú.
Ég tek það fram að svona eru týpískir dagar hjá mér...EKKI.
En ljóst er að ég er sannkölluð skutla..........ekki satt
kv. Anna

Merkilegt nokk !
06. september 2007 klukkan 15:36
Ég komst að alveg fáránlega frábærum hlut. Það eru nefnilega ekki nánda nærri því eins margar kaloríur í SS pylsu í brauði með öllu gumsinu á , heldur en í SS pylsu bara í brauði, án alls.
Ja, hérna ég skal segja ykkur það........skemmtileg uppfinning það, sérstaklega fyrir svona gumsara eins og mig.
Þetta stendur nefnilega skýrum stöfum á smjörpappísr bréfinu frá SS sem alltaf er sett utan um pylsuna, þegar maður kaupir hana. Utan á þessu bréfi eru ýmsar mjög gagnlegar uplýsingar um þjóðarréttinn okkar magnaða. En ég leyfi mér samt sem áður að efast um sannleiksgildi þssara upplýsinga.
Samkvæmt næringarfræðibókinni (sem ég reyndar keypti samviskusamlega á sínum tíma, en stengleymdi hinsvegar alveg að lesa), er sannleikanum aðeins hnikað til.
Sósuguttlið dásamlega og laukurinn syndsamlegi gerir manni varla neitt sérstaklega gott, nema þá helst gott á bragðið.
Ég er sko búin að mölva heilann um þetta fram og til baka, vinstri og hægri, aftur og áfram, norður og niður, þvers og kruss og sikk og sakk. Og meira en það...ég hef komist að niðurstöðu.
Þegar ég borða pylsu með öllu, fæ ég að sjálfsögðu hráan lauk með, við lítinn fögnuð vina og vandamanna. Þeir taka því bæði meðvitað og ómeðvitað að flýja, halda sig fjarri manni á meðan verstu ósköpin ganga yfir, nefnilega andremman ógurlega. Orkan sem fer í það að elta vini sína uppi og endurheimta vinskapinn er svo mikil og þess vegna brennir maður meira og...........þegar upp er staðið, eru kaloriurnar sem eftir sitja mun færri.
Já, ég er bara ánægð með þessi merkilegu vísindi
kv Anna